Gagnatrygging
VIÐ TRYGGJUM AÐ VERKIÐ SÉ TÆKNILEGA Í LAGI
Öll verk fara í gegnum tæknilega gæða- og forskoðun hjá okkur.
Þetta er innifalið í verði og tryggir einfaldlega mun meiri gæði prentgripa því verkið er
stoppað ef upp koma tæknilegir gallar sem hindra að við getum framleitt verkið.
Þetta tryggjum við alltaf að sé í lagi
- samræmi milli skjals og upplýsinga á verkbeiðni
- blæði sé á myndum og grunnum sem ná út í skurð
- myndir séu í nægjanlegri upplausn og í réttu formati
- letur fylgi með PDF fonts embedded“
- skjal sé miðjað í PDF
Ef upp koma tæknilegir gallar sbr. hér að ofan höfum við samband við viðskiptavin. Hann getur þá gert lagfæringar sjálfur eða látið okkur sjá um þær ef mögulegt er, gegn vægu gjaldi.
MÁ BJÓÐA ÞÉR SÉRSTAKA GAGNATRYGGINGU?
Sumir prentgripir eru einfaldlega flóknari og dýrari en aðrir í framleiðslu og mikið í húfi. Auðvitað skoðum við öll verk með tilliti til þess að þau séu tæknilega í lagi, það er einfaldlega innifalið í verði. Við vitum hins vegar að stærri verkefni með sérlitum og lakki, bókarkápur, up-phleypingar, flókin verk á borð við umbúðir sem getur þurft að bæði stansa og líma, óvenjulega útfærð verk í litum, efnum eða frágangi og verk sem ekki koma til okkar á PDF eru verk sem eru viðkvæm og lítið má út af að bera.
Við mælum eindregið með að viðskiptavinir kaupi sérstaka gagnatryggingu á stærri og flóknari verk í líkingu við þau sem talin eru upp hér að ofan. Ef þú ert ekki viss hafðu samband við prentráðgjafa okkar í síma 515 5000 og fáðu allar nánari upplýsingar.
Sérstök gagnatrygging felur í sér að skoðaður er sérstaklega
- frágangur á flóknum litasamsetningum og sérlitum
- frágangur á lakk-skjölum
- tæknileg gæði mynda með tilliti til pappírs og prentaðferðar
- merkingar fyrir brot og skurð þar sem ýtrustu nákvæmni er óskað
- úrtökur fyrir lími úr lakki og litum, gerð eru PDF skjöl af verkum sem ekki koma þannig
Þessi listi er mislangur og fer alltaf eftir eðli verka og sérstökum óskum viðskiptavina.
GÖGNIN ÞÍN Í ÖRUGGUM HÖNDUM
Öll gögn sem berast okkur rafrænt eru geymd þannig.
Fyrir viðskiptavini okkar þýðir þetta að auðvelt er að nálgast gögnin til endurprentunar.
Þurfi að lagfæra gögnin fyrir endurútgáfu aðstoðum við okkar viðskiptavini við breytingar.
Vilji viðskiptavinir okkar nálgast gögnin til annarra nota afhendum við þau gegn afhendingargjaldi.
Allt efni sem við geymum er meðhöndlað sem trúnaðarmál og aldrei
framseld til þriðja aðila nema að ósk viðskiptavinar eða eiganda gagna.


