Myndir

Format mynda

EPS, TIFF, JPG, PDF og PSD eru þau snið sem við mælum með, en þegar um 4 lit + aukaliti er að ræða í myndum notið þá EPS-DCS og PSD.

Kerfin hjá okkur varpa RGB myndum sjálfkrafa yfir í CMYK. Athugið, að margendurtekin vistun JPG mynda rýrir gæði þeirra verulega.

notkun lita

Upplausn mynda

300 dpi. er ákjósanleg upplausn fyrir myndir til prentunar og þó hún fari niður í 250 dpi. þá er það yfirleitt í fínu lagi. Myndir úr stafrænum myndavélum hafa komið þokkalega út þrátt fyrir lægri upplausn alveg niður í 150 dpi. Sú upplausn getur verið nothæf en við mælum ekki með því að tekin sé sú áhætta.
Innskannaðar myndir eru viðkvæmari fyrir lágri upplausn.

Samanlögð þekja í CMYK

Samanlögð þekja í fjórlit má helst ekki fara upp fyrir 320%.

CMYK prófílar

 

 

 
 
 

Prentsmiðjan Oddi ehf - Höfðabakka 7 - 110 Reykjavík - Sími 515 5000 - Fax 515 5001 - oddi@oddi.is
Opið 8:00-17:00 mánud. - fimmtud. Föstudaga 08:00-16:30 - Sími eftir lokun skiptiborðs 840 5010