Sagan

Prentsmiðjan Oddi hf. á sér svipaða sögu og mörg önnur íslensk fyrirtæki. Byrjað var smátt. Nokkrir einstaklingar stofnuðu fyrirtækið að frumkvæði Baldurs Eyþórssonar prentara, fyrst og fremst til þess að sjá sjálfum sér fyrir atvinnu og fjölskyldum sínum farborða. Með þrotlausri vinnu, dugnaði og útsjónarsemi tókst frumherjunum að stíga skrefin eitt af öðru og skila Odda í hendur nýrra kynslóða sem öflugu fyrirtæki.

Prentsmiðjan Oddi hf. var stofnuð 9. október 1943 og hóf þá starfsemi í Ásmundarsal við Freyjugötu. Nafnið var sótt í frægt menntasetur á Rangárvöllum. Í fyrstu voru einu starfsmennirnir eigendurnir þrír og unnu þeir öll verk sem til féllu í prentsmiðjunni. Haustið 1944 var prentsmiðjan flutt í leiguhúsnæði að Grettisgötu 16. Síðar voru fest kaup á því húsnæði og var fyrirtækið rekið þar allt til ársins 1968 en þá var húsnæðið orðið allt of lítið.
Árið 1966 festi Oddi kaup á rýmra húsnæði að Bræðraborgarstíg 7 og flutti þangað með starfsemi sína vorið 1968. En vöxtur fyrirtækisins var slíkur að fljótt þrengdi að og nokkrum árum síðar, eða 1972, keypti Oddi einnig Bræðraborgarstíg 9. Þótt húsin tvö væru stór voru þau að mörgu leyti óhagkvæm fyrir prentsmiðjureksturinn.

Loks var ákveðið að byggja eigið húsnæði á lóð við Höfðabakka. Fyrsta skóflustungan var tekin 25. ágúst 1979 og aðeins tuttugu mánuðum síðar var öll starfsemi Odda flutt í nýja húsið. Síðan þá má segja að húsnæðið hafi stækkað jafnt og þétt enda var í upphafi gert ráð fyrir stækkunarmöguleikum.

Þann 1. október 2008 var rekstur Prentsmiðjunnar Odda, Prentsmiðjunnar Gutenberg og umbúðavinnslu Kassagerðarinnar sameinaður undir merkjum Odda. Sameiningin styrkti stöðu Odda enn frekar á íslenskum prentmarkaði með auknum tækjakosti í umbúðaframleiðslu. Prentsmiðjan Oddi býður nú alla helstu prentþjónustu og umbúðavinnslu fyrir fyrirtæki og einstaklinga á einum stað.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að frumherjarnir hófu rekstur Odda við þröngan kost í leiguhúsnæði við Freyjugötu. Oddi er nú í hópi fullkomnustu og fjölhæfustu prentsmiðja á Norðurlöndum. Reksturinn byggir þó á sama grunni og í öndverðu: hæfu starfsfólki, vel menntuðu og metnaðarfullu fagfólki.

Við vitum að viðskiptavinir okkar eru ánægðir með þjónustuna, hraða afgreiðslu og gæði prentverksins. Við erum stolt af þeirri vitneskju, en það er okkur einnig hvatning til frekari dáða. Á komandi árum viljum við auka þann þátt starfsemi okkar sem lýtur að ráðgjöf til viðskiptavina. Við viljum hlusta á þá, læra af þeim og sníða okkar starfsemi að þörfum þeirra. Þetta eru okkar markmið - þetta er okkar stefna.

Þetta er Prentsmiðjan Oddi.

 

 

 

 
 
 

Prentsmiðjan Oddi ehf - Höfðabakka 7 - 110 Reykjavík - Sími 515 5000 - Fax 515 5001 - oddi@oddi.is
Opið 8:00-17:00 mánud. - fimmtud. Föstudaga 08:00-16:30 - Sími eftir lokun skiptiborðs 840 5010