CMYK prófílar
CMYK prófílar eru til þess gerðir að varpa myndum úr rgb litrými yfir í CMYK litrými, einnig ef einungis á að skoða hvernig vörpunin fer fram, en það er gert með skipuninni "Proof Colors" í Photoshop. Sú aðferð er notuð í RGB vinnsluferlinu sem við mælum með að nota, en þá fer raunveruleg vörpun, yfir í CMYK fram á lokastigum vinnslunar.
Nánari upplýsingar:
Samtök iðnaðarins - RGB vinnsluferli
Áferð og þéttleiki pappírsins ræður því hvaða prófíll er notaður. Í Odda er prófíllinn „ISO Coated v2 300% (ECI)“ notaður þegar prenað er á þéttan eða sæmilega þéttan húðaðan pappír. Ef prentað er á Munken pappír eða annan gljúpan bókapappír er „AP_Munken Lynx.icm“ notaður.
ISOcoated_v2_300_eci.icc
| Prentsmiðjan Oddi ehf - Höfðabakka 7 - 110 Reykjavík - Sími 515 5000 - Fax 515 5001 - oddi@oddi.is | | |
