Oddi prentar nýja kortalínu Forlagsins
| Oddi prentaði nýja kortalínu Forlagsins sem ferðaglaðir Íslendingar hafa tekið fagnandi. Skv. Forlaginu hefur síminn vart stoppað frá því að Atlaskorta-askjan var kynnt. Atlaskortin eru án efa einn viðamesti flokkur korta af Íslandi sem nokkru sinni hefur komið fyrir almenningssjónir og ekki spillir umgjörðin en askjan utan um kortin er einnig framleidd af Odda. Í kassanum er að finna 31 stórbrotið kort sem sýnir landið allt – frá annesjum til eyja – uppfært með allra nýjustu upplýsingum. |
